

Ég á um það bil 30 svarta rokkaraboli því mér finnst grafíkin vera skemmtileg og oft hægt að finna þannig boli úr þykku og góðu efni. En ég hef engan sérstakann áhuga á rokkhljómsveitunum sjálfum, það eru bara einu bolirnir sem hægt er að nálgast auðveldlega. Mér finnst vanta álíka boli en kannski með einhverju öðru en beinagrind og eld. Þó að beinagrindur og eldbolir séu nettir þá finnst mér stundum leiðinlegt að vera í einhverju sem gæti vakið upp hræðslu ef ég veit að ég er að fara að vera í kringum börn.
Mér fannst því góð lausn að bjóða fólki uppá vandaða grafíska boli því það er eitthvað sem ég myndi sjálfur vilja, boli sem segja eitthvað annað en metallica og slipknot eða ódýrir H&M grafískir bolir úr lélegu efni.
Það tók langan tíma að finna nógu góða boli til að prenta á, því bolir geta verið misgóðir og fyrirtækin sem prenta á þá líka. Ég teikna sjálfur allt sem fer á bolina nema þegar ég nota ljósmyndir og ég vona að ykkur finnist bolirnir flottir.
Kv Jónas Björn Pálsson